Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. júlí 2016 14:05
Þorsteinn Haukur Harðarson
Kyle Walker vildi frekar vera með viðhaldinu en á EM
Walker í leik á EM.
Walker í leik á EM.
Mynd: Getty Images
Enski landsliðsmaðurinn Kyle Walker er ekki bara að valda vonbrigðum innan vallar því nú hefur hann líka komið sér í vandræði í einkalífinu.

The Sun hefur eftir heimildarmanni að á meðan Walker var með landsliði Englands á EM hafi hann átt í sms samskiptum við playboyfyrirsætuna Cörlu Howe.

Á hann meðal annars að hafa sent skilaboð þess efnis að hann væri frekar til í að vera með henni á Ibiza en með Englandi á EM. Þetta sendi hann einungis tveimur dögum fyrir fyrsta leik Englands á EM.

Ekki nóg með að stuðningsmenn Englands séu ósáttir með þetta viðhorf leikmannsins því það má einnig gera ráð fyrir því að sambýliskona hans sé ósátt við skilaboðin.

Walker hefur verið með konu að nafni Annie Kilner í nokkur ár og eiga þau einn son saman.

Athugasemdir
banner
banner
banner