Fréttamannafundur íslenska liðsins fór fram í dag. Fjöldinn allur af fjölmiðlum var mættur á fundinn.
Lars Lagerback var spurður út í treyjusölu liðsins en samkvæmt miðlum erlendis er hún uppseld.
Lars Lagerback var spurður út í treyjusölu liðsins en samkvæmt miðlum erlendis er hún uppseld.
„Ég hef ekki hugmynd," sagði Lars og var hlegið vel í salnum.
Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi skaut þá inn í.
„Miðað við tölvupóstana sem við höfum fengið þá er það satt. Við erum með 18000% aukningu í sölu, það er gott. Það er hins vegar ekki eins gott að fólk getur ekki fengið treyjur lengur en við höfum trú á Errea og fólk getur eflaust verslað treyjur bráðum."
Fótbolti.net er með öflugt teymi á Evrópumótinu og færir ykkur fjölmargar fréttir daglega. Einnig er fylgst grannt með gegnum helstu samskiptamiðla.
- Vertu með okkur á Twitter með því að nota kassamerkið #fotboltinet fyrir færslur um mótið.
- Fótbolti.net á Snapchat: Fotboltinet
- Fótbolti.net á Instagram: Smelltu hér til að sjá .Net á Instagram.
Fótbolti.net á Facebook: Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook.
FARÐU Á EM SÍÐU FÓTBOLTA.NET
Athugasemdir