Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. júlí 2016 12:09
Þorsteinn Haukur Harðarson
Mandanda til Crystal Palace (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Crystal Palace hefur gengið frá kaupum á franska markverðinum Steve Mandanda.

Mandanda kemur til liðsins frá Marseille í Frakklandi en samningur hans þar var að renna út.

Samningurinn við Crystal Palace er til þriggja ára.

Þessi 31 árs gamli markvörður lék 443 leiki fyrir Marseille en hann er þessa stundina með franska landsliðinu á EM í heimalandinu.

Hann hefur þó ekki spilað á mótinu þar sem Hugo Lloris er aðalmarkmaður Frakka.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner