Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 01. júlí 2016 16:35
Þorsteinn Haukur Harðarson
Meiðslavandræði og leikbönn hjá Belgum fyrir leikinn í kvöld
Vermaelen er í banni í kvöld.
Vermaelen er í banni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Belgía og Wales mætast í 8-liða úrslitum á EM í kvöld. Allir eru með hjá Walesverjum en Belgar eru í veseni.

Varnarmaðurinn Jan Vertonghen meiddist illa á æfingu Belga og verður líklega ekki meira með á mótinu. Þá er annar varnarmaður, Thomas Vermaelen, í leikbanni og verður því ekki með.

Fjölmiðlar greina einnig frá því að Edin Hazard sé tæpur vegna meiðsla en það hefur ekki fengist staðfest.

Ashley Williams, fyrirliði Wales, hefur náð sér af meiðslum í öxl og verður klár í slaginn í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner