Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. ágúst 2014 17:00
Eyþór Ernir Oddsson
Áfrýjun á banni Suarez fer fram 8. ágúst
Mynd: Getty Images
Áfrýjun á leikbanni Luis Suarez, framherja Barcelona, mun fara fram 8. ágúst.

Líkt og flestir vita var Suarez dæmdur í fjögurra mánaða bann fyrir að bíta Giorgio Chiellini í öxlina í leik Ítala og Úrúgvæ á HM í sumar.

Suarez þarf því að bíða með það að spila sinn fyrsta leik en verði ekkert að gert, þá verður hann í banni þar til seinni partinn í október.

Hann verður ekki einungis í leikbanni, heldur má hann ekki æfa með liðinu né fara á völlinn á meðan á banninu stendur.
Athugasemdir
banner
banner