Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. ágúst 2014 11:30
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Heimasíða Man Utd 
Fletcher: Herrera mun hafa góð áhrif
Mynd: Manchester United
Darren Fletcher, miðjumaður Manchester United, hefur hrifist af nýja leikmanni liðsins, Ander Herrera á þeim mánuði sem hann hefur verið hjá félaginu og trúir því að hann muni spila stórt hlutverk á komandi leiktíð.

Herrera er 24 ára gamall og kom frá Atletico Bilbao í júní á svipuðum tíma og Man Utd keypti Luke Shaw frá Southampton.

,,Hann er mjög hæfileikaríkur fótboltamaður. Hann er með mikinn eldmóð og mikla orku á miðjunni. Hann vill alltaf boltan og leitast eftir því að láta hlutina gerast."

,,Eldmóður hans er smitandi og hefur smitast í nokkra okkar nú þegar og hann leggur mikið á sig fyrir liðið. Hann vill læra og hlusta, hann tekur leiðbeiningum vel og er góður náungi"

,,Hann hefur náð að aðlagast vel en ekki bara með spænsku mælandi leikmönnum. Hann mun vera lykilmaður hjá United."

Athugasemdir
banner
banner
banner