Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 01. ágúst 2014 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Heimild: Goal.com 
HM-stjarnan Ochoa til Malaga (Staðfest)
Guillermo Ochoa.
Guillermo Ochoa.
Mynd: Twitter
Mexíkóinn Guillermo Ochoa er formlega genginn í raðir Malaga á frjálsri sölu frá Ajaccio í Frakklandi.

Þessi 29 ára gamli markvörður sló í gegn á HM í sumar þar sem hann fór fyrir landsliði Mexíkó er liðið komst í 16-liða úrslit mótsins. Lék hann alla leiki liðsins og varði oft á tíðum eins og berserkur.

Ochoa kemur til með að fylla skarð Argentínumannsins Willy Caballero sem var seldur til Manchester City fyrr í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner