Heimild: Telegraph
Ian Ayre, framkvæmdastjóri Liverpool, er staddur á Spáni til að ganga frá kaupum á tveimur bakvörðum
Um er að ræða hinn unga Javier Manquillo, leikmann Atletico Madrid, sem og Alberto Moreno, leikmann Sevilla.
Liverpool reyndi að kaupa Moreno fyrr í sumar og bauð í leikmanninn. Samningar tókust ekki og snéri félagið sér að því að reyna að klófesta Ryan Bertrand frá Chelsea. Bertrand gekk hinsvegar í raðir Southampton.
Samkvæmt Telegraph mun Liverpool greiða um 16 milljónir punda fyrir hinn 21 árs gamla Moreno. Með því fer eyðsla félagsins í sumar upp fyrir 100 milljónir.
Athugasemdir