Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 01. ágúst 2014 21:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Mauricio Isla nálgast QPR
Mauricio Isla (Til hægri)
Mauricio Isla (Til hægri)
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því í dag að Queens Park Rangers séu í viðræðum við Juventus um möguleikann að fá Mauricio Isla.

Isla er landsliðsmaður Síle og virðist Juventus vera reiðubúið að lána kappann út.

Isla, spilaði með Síle á HM, en hann kom til Juventus frá Udinese árið 2012.

Mörg lið ku hafa áhuga á Isla en QPR þykir hvað líklegast til að fá leikmanninn.

Harry Redknapp er staðráðinn í að fá fleiri leikmenn til liðsins áður en tímabilið byrjar. Isla getur bæði leikið sem hægri bakvörður sem og miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner