Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. ágúst 2014 11:00
Eyþór Ernir Oddsson
QPR ekki haft samband við van der Vaart
Mynd: Getty Images
Rafael van der Vaart, leikmaður Hamburg í Þýskalandi, segir að enginn hafi haft samband við hann þrátt fyrir orðróma um að nýliðar QPR í ensku úrvalsdeildinni hafi áhuga á honum.

Van der Vaart þekkir England vel en hann lék með Tottenham í tvö ár milli 2010-2012 við góðan orðstýr en hjá QPR er Harry Redknapp þjálfari, en hann þjálfaði Vaart hjá Tottenham á sínum tíma.

,,Redknapp hefur ekki hringt í mig. Í fótbolta veistu aldrei en hingað til höfum við ekki talað saman."

,,Ég naut góðra tengsla við Redknapp þegar við vorum hjá Tottenham. Hann er topp þjálfari og ég var í topp formi þá."

Athugasemdir
banner
banner
banner