Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 01. ágúst 2015 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Off The Post 
Man Utd með tilboð í efnilegan Brassa
Joao Pedro
Joao Pedro
Mynd: Getty Images
Manchester United gerði 4 milljón evra tilboð í Joao Pedro, varnarmann Palmeiras, en frá þessu greinir brasilíska fréttaveitan Band.

Talið er að Palmeiras hafi þó hafnað tilboðinu þar sem að félagið á aðeins 50% í leikmanninum og myndi því aðeins fá hluta af tilboði United.

Joao Pedro er 18 ára gamall bakvörður sem hefur átt fast byrjunarliðssæti í U-20 ára liði Brasilíu.

Hann náði að vinna sér inn sæti í liði Palmeiras á síðasta tímabili og hefur leikið 18 leiki fyrir félagið.

Talið er að Lyon hafi einnig áhuga á þessu efnilega leikmanni.
Athugasemdir
banner
banner