Frank Lampard lék í kvöld sinn fyrsta leik í MLS-deildinni er lið hans, New York City FC tapaði fyrir Montreal Impact, 3-2.
Þessi fyrrum leikmaður Chelsea lék í rúmlega 20 mínútur á miðjunni hjá New York í kvöld.
Þessi fyrrum leikmaður Chelsea lék í rúmlega 20 mínútur á miðjunni hjá New York í kvöld.
Andrea Pirlo byrjaði í fyrsta sinn í kvöld hjá New York en hann hafði komið inn á af bekknum gegn Orlando City um síðustu helgi.
New York tilkynnti um kaupin á Lampard í júlí 2014 en hann var strax lánaður til Manchester City og spilaði þar út tímabilið.
Lampard fór svo aftur til New York í síðasta mánuði en hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa.
Athugasemdir