Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 01. ágúst 2015 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Goal 
Pastore: Di Maria vill fara til PSG
Javier Pastore
Javier Pastore
Mynd: Getty Images
Javier Pastore, leikmaður PSG, hefur greint frá því að Angel Di Maria vilji ganga til liðs við franska stórliðið.

Di Maria kom til Manchester United á 59,7 milljónir punda frá Real Madrid í fyrra en náði sér ekki á strik á sínu fyrsta tímabili á Englandi.

Nú lítur allt út fyrir að þessi 27 ára gamli Argentínumaður sé á leið til PSG og hefur landi hans, Pastore ýtt undir það.

"Ég sagði honum að ganga til liðs við okkur. Hann spurði mig um félagið, borgina og lifnaðarhætti fyrir fjölskyldu hans," sagði Pastore í samtali við Le Parisen.

"Hann vill koma. Hann er frábær leikmaður, sem getur unnið leiki upp á eigin spýtur."
Athugasemdir
banner
banner
banner