Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 01. ágúst 2015 10:20
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Verslunarmannahelgarþáttur Fótbolta.net í dag
Á X977 í dag laugardag milli 12 og 14
Vertu með okkur á X-inu á morgun!
Vertu með okkur á X-inu á morgun!
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net tekur sér ekki frí um helgina en sérstök Verslunarmannahelgarútgáfa verður á X-inu FM 97,7 í dag laugardag milli 12 og 14.

Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fara yfir undanúrslitaleikina í bikarnum, renna yfir stöðu mála í Pepsi-deildinni og hita upp fyrir leikinn um Samfélagsskjöldinn.

Þess á milli verður heyrt í fréttariturum Fótbolta.net sem eru svo sannarlega um allt land, meðal annars á Mýrarboltamótinu, Þjóðhátíð og Neistaflugi.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner