Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 01. september 2014 16:35
Magnús Már Einarsson
Benjamin Stambouli til Tottenham (Staðfest)
Benjamin Stambouli (til hægri).
Benjamin Stambouli (til hægri).
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur keypt miðjumanninn Benjamin Stambouli frá Montpellier.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en talið er að það sé á milli fimm og sex milljónir punda.

Hinn 24 ára gamli Stambouli spilar aftarlega á miðjunni.

Stambouli hefur allan sinn meistaraflokksferil leikið með Montpellier en hann var varafyrirliði hjá félaginu.

Árið 2010 skoraði Stambouli þrennu í fyrsta leik sínum í frönsku deildinni gegn Bordeaux en öll mörkin komu með skoti á lofti.
Athugasemdir
banner
banner