Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. september 2014 23:59
Ívan Guðjón Baldursson
Danny Welbeck orðinn leikmaður Arsenal (Staðfest)
Danny Welbeck er kominn til Arsenal.
Danny Welbeck er kominn til Arsenal.
Mynd: Getty Images
Það er búið að staðfesta kaup Arsenal á enska sóknarmanninum Danny Welbeck frá Manchester United og skrifar hann undir fimm ára samning við félagið.

Arsenal borgar um 16 milljónir punda fyrir leikmanninn sem mun veita Olivier Giroud harða samkeppni í baráttunni um sóknarmannsstöðuna þegar sá franski kemur úr meiðslum. Giroud er frá til áramóta.

Welbeck verður 24 ára gamall í nóvember og hefur ekki náð sér almennilega á strik hjá Man Utd enda er hann yfirleitt notaður úr stöðu á vinstri kanti.

Sóknarmaðurinn hefur þó skorað 20 mörk í 90 leikjum fyrir Rauðu djöflana og á 8 mörk í 26 landsleikjum fyrir England.
Athugasemdir
banner
banner