Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 01. september 2014 06:00
Magnús Már Einarsson
Félagaskiptaglugginn lokar í kvöld - Fylgist með á Fótbolta.net
Harry Redknapp stjóri QPR mætir í einhver bílrúðu viðtölin hjá Sky í dag.
Harry Redknapp stjóri QPR mætir í einhver bílrúðu viðtölin hjá Sky í dag.
Mynd: Getty Images
Félagaskiptaglugginn á Englandi og víðar í Evrópu lokar klukkan 22:00 í kvöld að íslenskum tíma.

Fótbolti.net verður að sjálfsögðu með puttana á púlsinum á þessum stóra lokadegi félagaskiptagluggans, þar sem oftar en ekki er boðið upp á góða flugeldasýningu.

Við munum segja frá öllu því helsta í beinni á Twitter síðu okkar sem og í frétt á forsíðunni.

Við hvetjum lesendur endilega taka þátt í umræðunni á Twitter með því að nota „#fotboltinet“ við endann á færslum sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner