Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 01. september 2014 21:17
Ívan Guðjón Baldursson
Gabbidon spilandi þjálfari hjá Cardiff (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hinn 35 ára gamli Danny Gabbidon er genginn til liðs við Championship lið Cardiff City sem spilandi þjálfari.

Gabbidon er varnarmaður og skrifaði undir eins árs samning við velska félagið.

Varnarmaðurinn er álitinn sem goðsögn í Cardiff eftir að hann var þar í fimm ár frá 2000 til 2005.

Gabbidon mun þá ganga til liðs við þjálfarateymi Ole Gunnar Solskjær þar sem hann þjálfar varnarmenn liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner