,,Þetta er mjög svekkjandi, við ætluðum klárlega að taka þrjú stig en mér fannst við ekki gera tilkall til þess. Þær voru grimmari og áttu þetta meira skilið," sagði Hallbera Guðný Gísladóttir leikmaður Vals eftir 0-2 tap gegn Fylki í árbænum í kvöld.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 0 Valur
,,Við vorum að einbeita okkur mikið á varnarleikinn. Ef við hefðum lagt meira púður í að keyra á þær hefðum við kannski náð að setja aðeins á þær. Það voru margir tæknifeilar og mikið af mistökum. Þetta var ekki mjög fallegur leikur, en við hefðum getað náð að setja aðeins á þær. Við áttum ekkert sérstaklega mikið í þessum leik fannst mér."
Hallbera fékk flugferð í leiknum og haltraði mikið eftir leik. Hvað gerðist?
,,Ég hoppaði bara upp í skallabolta og maður veit það á Fylkisvelli að þá fær maður að finna fyrir því. Ég fékk bara tak í hálsinn og það er vonandi bara vont í nokkra daga."
Athugasemdir