Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. september 2014 18:29
Ívan Guðjón Baldursson
Inter lánar Alvarez til Sunderland (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ricky Alvarez er kominn til Sunderland á láni út tímabilið en þetta staðfesti enska félagið á Twitter í dag.

Alvarez er 26 ára gamall og á um hundrað leiki að baki fyrir Inter og sjö fyrir argentínska landsliðið.

Alvarez er sóknartengiliður og níundi leikmaðurinn sem Sunderland fær til sín í sumar, en Sebastian Coates kom einnig til félagsins fyrr í dag.

Það er því ljóst að Sunderland verður með gjörbreyttan leikmannahóp á þessu tímabili og spennandi að fylgjast með hvort félagið geti forðast fallbaráttuna.
Athugasemdir
banner
banner