Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 01. september 2014 16:19
Magnús Már Einarsson
Lewis Holtby til Hamburg (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hamburg hefur fengið miðjumanninn Lewis Holtby á láni frá Tottenham.

Þýska félagið á einnig kost á að kaupa Holtby næsta sumar ef hann stendur sig vel í vetur.

Holtby hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Tottenham síðan hann kom til félagsins frá Schalke í janúar árið 2013.

Síðari hlutann á síðasta tímabili var Holtby í láni hjá Fulham en hann náði ekki að hjálpa liðinu að bjarga sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner