Swansea City hefur tryggt sér ungan sóknarmann, Modou Barrow sem fæddur er í Gambíu en fluttist ungur til Svíþjóðar.
Barrow er 21 árs og kemur frá Östersunds FK þar sem hann skoraði 10 mörk í 19 leikjum á síðasta tímabili.
Barrow er 21 árs og kemur frá Östersunds FK þar sem hann skoraði 10 mörk í 19 leikjum á síðasta tímabili.
Barrow segist hrifinn af leikstíl Swansea.
„Þeir gefa ungum leikmönnum tækifæri og vonandi get ég tekið framförum hérna," segir Barrow.
Hann mun til að byrja með fara í U21-liðið hjá Swansea en vonast til að brjóta sér leið inn í aðalliðið sem fyrst.
Athugasemdir