Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Kólumbíumaðurinn Fredy Guarin sé nálægt því að ganga í raðir Real Madrid frá Inter.
Um lánssamning er að ræða og er talið að Real muni greiða Inter 2 milljónir evra fyrir samninginn.
Guarin verður annar leikmaðurinn sem Real fær að láni í dag, en í morgun fékk félagið framherjann Javier Hernandez frá Manchester United.
Athugasemdir