Brasilíski miðjumaðurinn Sandro er genginn til liðs við nýliða QPR á 10 milljónir punda.
Sandro kemur frá Tottenham þar sem hann hefur ekki átt byrjunarliðssæti í nokkurn tíma vegna harðrar baráttu við leikmenn á borð við Moussa Dembele, Paulinho og Christian Eriksen.
Sandro kemur frá Tottenham þar sem hann hefur ekki átt byrjunarliðssæti í nokkurn tíma vegna harðrar baráttu við leikmenn á borð við Moussa Dembele, Paulinho og Christian Eriksen.
Harry Redknapp fékk Sandro til Tottenham á sínum tíma og notaði hann reglulega í tvö ár, eða allt þar til hann tók við QPR.
Sandro mun bæta gæðin á miðju QPR sem eru með miðjumenn á borð við Karl Henry, Jordon Mutch og Joey Barton.
Athugasemdir