Heimildir Sky Sports herma að Danny Welbeck, sóknarmaður Manchester United, sé í læknisskoðun hjá Arsenal.
Arsene Wenger hefur verið í leit að sóknarmanni eftir að Olivier Giroud meiddist en Frakkinn spilar ekki meira á þessu ári.
Arsene Wenger hefur verið í leit að sóknarmanni eftir að Olivier Giroud meiddist en Frakkinn spilar ekki meira á þessu ári.
Welbeck fékk að vita það frá United að hann væri ekki í áætlunum Louis van Gaal og væri frjálst að yfirgefa félagið.
Fyrr í dag virtust enskir fjölmiðlar vera vissir um að Welbeck væri á leið til Tottenham en allt bendir til að Arsenal verði nýtt félag enska landsliðsmannsins.
Athugasemdir