Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 01. september 2014 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Rúnar Már skoraði í sigri Sundsvall
Mynd: Heimasíða GIF Sundsvall
Sundsvall 2 - 1 Assyriska FF
1-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('36)
1-1 F. Holster ('70)
2-1 K. Walker ('73)

Rúnar Már Sigurjónsson og Jón Guðni Fjóluson léku allan leikinn í liði Sundsvall sem lagði Assyriska FF í næstefstu deild sænska boltans.

Sundsvall er á toppi deildarinnar með tveggja stiga forystu þegar átta umferðir eru eftir af tímabilinu.

Rúnar Már skoraði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik en gestunum tókst að jafna í síðari hálfleik áður en Kevin Walker skoraði sigurmarkið á 73. mínútu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner