Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. september 2014 09:52
Magnús Már Einarsson
Toby Alderweireld í læknisskoðun hjá Southampton
Toby Alderweireld.
Toby Alderweireld.
Mynd: Getty Images
Southampton er að krækja í varnarmanninn Toby Alderweireld á láni frá Atletico Madrid.

Arsenal, Newcastle og West Ham hafa einnig sýnt hinum belgíska Alderweireld áhuga en hann mun líklega ganga í raðir Southampton í dag.

,,Toby Alderweireld mun fara í læknisskoðun í dag," sagði Ronald Koeman stjóri Southampton.

Southampton hefur misst marga leikmenn í sumar og Koeman vonast eftir að fá fleiri menn í dag áður en félagaskiptaglugginn lokar.

,,Ég get vonandi einnig bætt við sóknarmanni. Ég get ekki sagt hvaða leikmönnum við erum að vinna í."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner