Aston Villa reyndi að fá Dimitar Berbatov í sínar raðir á lokadegi félagaskiptagluggans á frjálsri sölu en það gekk ekki upp. Sky Sports segist hafa heimildir fyrir þessu.
Samkvæmt Sky lenti Búlgarinn á flugvellinum í Birmingham snemma í morgun og sótti samlandi hans Stylian Petrov framherjann á flugvöllinn.
Berbatov ræddi við forráðamenn félagsins á æfingasvæðinu en aðilarnir voru þó aldrei nálægt því að komast að samkomulagi um laun.

Berbatov var leystur undan samningi frá Monaco í sumar eftir eins og hálfs árs dvöl hjá franska úrvalsdeildarfélaginu. Hann á góðan feril að baki og varð t.a.m. Englandsmeistari í tvígang með Manchester United.
Athugasemdir