Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 01. september 2015 16:30
Magnús Már Einarsson
Charlie Austin fer ekki frá QPR
Mynd: Getty Images
Charlie Austin fer ekki frá QPR áður en félagaskiptaglugginn lokar klukkan 18:00 í dag.

Austin skoraði 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og vann sér inn sæti í enska landsliðinu.

Ekkert félag hefur hins vegar náð samkomulagi við QPR um kaup í sumar.

Newcastle United, Tottenham og Crystal Palace sýndu áhuga en Austin birti Twitter færslu í dag þar sem hann gaf í skyn að hann fari ekki neitt.

Austin á einungis ár eftir af samningi sínum við QPR en líklegt er að hann fari frítt næsta sumar.



Athugasemdir
banner
banner
banner