banner
   þri 01. september 2015 16:50
Arnar Geir Halldórsson
Ibarbo og Guedioura til Watford (Staðfest)
Victor Ibarbo
Victor Ibarbo
Mynd: Getty Images
Nýliðar Watford hafa staðfest félagaskipti Victor Ibarbo frá Roma og Adlene Guedioura frá Crystal Palace.

Guedioura gerir þriggja ára samning við Watford en Ibarbo kemur á eins árs lánssamning.

Guedioura þekkir vel til hjá Watford eftir að hafa hjálpað liðinu að tryggja sér úrvalsdeildarsæti í fyrra en þá var hann á láni hjá félaginu. Þessi alsírski miðjumaður hefur einnig leikið fyrir Nottingham Forest og Wolves á Englandi.

Ibarbo á 15 landsleiki að baki fyrir Kólumbíu en þessi 25 ára sóknarmaður sá ekki fram á mörg tækifæri hjá Roma eftir komu Edin Dzeko. Ibarbo getur þó einnig leikið á báðum vængjum.

Fyrr í dag gekk Watford frá kaupum á Obbi Oularé, 19 ára belgískum sóknarmanni sem kom frá Club Brugge.
Athugasemdir
banner
banner
banner