Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 01. september 2015 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ísland í dag - Ólsarar og Blikar geta tryggt sér titla
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Það er nóg um að vera í íslenska boltanum í dag þar sem mikið fjör og mikil spenna ríkir á lokaumferðum tímabilsins.

Í Pepsi-deild kvenna geta Blikar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á útivelli gegn Selfyssingum, en Blikastúlkur eru líklegar til að vinna deildina hvort sem þær tapa eða sigra á Selfossi í dag. Leikurinn verður sýndur beint á SportTV.is.

Úrslitakeppni 1. deildar kvenna og 4. deildar karla er í fullum gangi þar sem spennandi viðureignir eru á dagskrá.

Grindavík á heimaleik gegn toppliði Ólafsvíkinga í 1. deild karla og verður leikurinn sýndur á SportTV.is. Ólsarar tryggja sér titilinn í 1. deildinni með sigri í leiknum, á meðan Grindvíkingar geta reynt að komast bakdyramegina upp í Pepsi-deildina með sigri.

Þá eru fjórir leikir á dagskrá í 2. deildinni þar sem toppliðin þrjú eiga öll gífurlega spennandi leiki. Tvö stig skilja þrjú efstu lið deildarinnar að þegar fjórar umferðir eru eftir.

Þriðjudagur 1. september
Pepsi-deild kvenna
18:00 Valur-Þór/KA (Laugardalsvöllur)
18:00 Fylkir-Þróttur R. (Fylkisvöllur)
18:00 Stjarnan-ÍBV (Samsung völlurinn)
18:00 Selfoss-Breiðablik (SportTV.is - JÁVERK-völlurinn)

1. deild kvenna - Úrslit
17:30 ÍA-Fjarðabyggð (Norðurálsvöllurinn)
17:30 HK/Víkingur-Fram (Víkingsvöllur)
17:30 Völsungur-FH (Húsavíkurvöllur)

1. deild karla
18:00 Grindavík-Víkingur Ó. (SportTV.is - Grindavíkurvöllur)

2. deild
18:00 Sindri-Leiknir F. (Sindravellir)
18:00 KV-Huginn (KR-völlur)
18:00 Ægir-Afturelding (Þorlákshafnarvöllur)
18:00 ÍR-Njarðvík (Hertz völlurinn)

4. deild - Úrslit
17:30 Vængir Júpiters-Árborg (Fjölnisvöllur)
17:30 Þróttur V.-Hvíti riddarinn (Vogabæjarvöllur)
17:30 Augnablik-KFG (Fagrilundur)
18:00 ÍH-KH (Kaplakrikavöllur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner