Aston Villa hefur gengið frá kaupum á Joleon Lescott frá West Bromwich Albion.
Þessi 33 ára gamli enski varnarmaður gerir tveggja ára samning við Villa en kaupverðið er óuppgefið.
Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, hefur verið virkur á leikmannamarkaðnum í sumar en þetta eru elleftu kaup félagsins.
Lescott er þrautreyndur í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur leikið með WBA, Man City, Everton og Wolves auk þess að leika 26 landsleiki fyrir England.
Á ferli sínum hjá Man City vann Lescott deildina í tvígang og enska bikarinn einu sinni.
BREAKING TRANSFER NEWS: Huge welcome to new signing @JoleonLescott. #AVFC #DeadlineDay pic.twitter.com/Xb03iXUkg8
— Aston Villa FC (@AVFCOfficial) September 1, 2015
Athugasemdir