Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 01. september 2015 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kári Árna: Þeir ætla bara að keyra yfir okkur
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Árnason býst við erfiðum leik gegn Hollendingum í undankeppni Evrópumótsins næsta fimmtudag.

Ísland vann fyrri leikinn á Laugardalsvelli með tveimur mörkum gegn engu og yrði Kári mjög sáttur með eitt stig á Amsterdam Arena.

„Ég held að þeir verði nú aðeins grimmari í þessum leik þannig að ég held að þetta verði töluvert erfiðara heldur en þá," sagði Kári Árna við Fótbolta.net.

„Við gerum miklar kröfur í okkar leik. Við ætlumst til þess að sýna góða spilamennsku, baráttu og liðsheild í hverjum einasta leik."

Kári segir Hollendingana líklega ekki hafa verið tilbúna í að mæta sterku liði Íslendinga í fyrri leiknum og býst ekki við að það verði neitt vanmat fyrir síðari leikinn.

„Þeir voru svolítið ráðþrota í fyrri leiknum og ég held að þeir hafi ekki búist við svona sterkri varnareiningu og að við værum með hörku leikmenn innanborðs. Það kom þeim í opna skjöldu og ég held að það sé ekkert vanmat í gangi núna, þeir ætla bara að keyra yfir okkur.

„Auðvitað verða þeir meira með boltann, það er gefið, þeir voru meira með boltann í fyrri leiknum en sköpuðu lítið af færum. Þeir mega svosem vera með boltann allan leikinn ef þeir skapa ekkert af færum og að sjálfsögðu er eitt stig góður árangur fyrir okkur hérna."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner