Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. september 2015 19:24
Alexander Freyr Tamimi
Liverpool lánar Ilori til Aston Villa (Staðfest)
Tiago Ilori er farinn til Aston Villa.
Tiago Ilori er farinn til Aston Villa.
Mynd: Liverpool
Aston Villa hefur fengið varnarmanninn Tiago Ilori til liðs við sig á láni frá Liverpool út tímabilið.

Portúgalinn ungi gekk til liðs við Liverpool á lokadegi félagaskiptagluggans árið 2013 en hefur enn ekki spilað keppnisleik fyrir aðallið félagsins. Hefur hann verið lánaður til Granada og Bordeaux og spilaði 12 leiki í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Tim Sherwood, stjóri Aston Villa, var ánægður með að fá Ilori í sínar raðir og sagði við heimasíðu félagsins að hann myndi styrkja hópinn.

Samkvæmt James Pearce, blaðamanni hjá Liverpool Echo, er ólíklegt að Ilori muni nokkurn tíma spila fyrir Liverpool. Aston Villa ku geta keypt leikmanninn á 6-9 milljónir punda eftir tímabilið, en það fer eftir því hversu marga leiki hann spilar á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner