Anthony Martial er búinn að standast læknisskoðun hjá Manchester United samkvæmt frétt Sky Sports.
Manchester United er að kaupa Martial á 36 milljónir punda frá Monaco.
Martial fékk í gær leyfi til að yfirgefa franska landsliðshópinn og fara í læknisskoðun hjá enska félaginu.
Manchester United er að kaupa Martial á 36 milljónir punda frá Monaco.
Martial fékk í gær leyfi til að yfirgefa franska landsliðshópinn og fara í læknisskoðun hjá enska félaginu.
Martial er nú búinn að standast læknisskoðunina og því verða félagaskiptin væntanlega staðfest á næstu klukkutímunum.
Martial er 19 ára gamall en hann kom til Monaco frá Lyon árið 2013.
Athugasemdir