Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 01. september 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mastour leikmaður Malaga næstu tvö árin (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Hachim Mastour er talinn meðal efnilegustu leikmanna heims og var Real Madrid á eftir leikmanninum í sumar.

Mastour er 17 ára gamall sóknartengiliður sem á 6 leiki að baki fyrir ítalska U16 landsliðið og einn A-landsleik fyrir Marokkó, sem hann valdi sem landslið sitt framyfir það ítalska.

Mastour hefur vakið mikla hrifningu með frammistöðum sínum fyrir unglingalið Milan og Ítalíu og er mikils metinn í Mílanó.

Mastour skrifar undir tveggja ára lánssamning við Malaga þar sem hann gæti fengið spilatíma í efstu deild spænska boltans.
Athugasemdir
banner
banner