West Ham hefur gengið frá kaupum á Michail Antonio sem kemur til liðsins frá Nottingham Forest.
Þetta eru fjórðu kaup West Ham í dag en liðið hefur einnig keypt Nikica Jelavic frá Hull, fengið Alex Song að láni frá Barcelona og Victor Moses að láni frá Chelsea.
Antonio gerir fjögurra ára samning við West Ham og mun leika í treyju númer 30.
Þessi 25 ára gamli Englendingur er kantmaður en hann skoraði fjórtán mörk fyrir Nottingham Forest í Championship deildinni á síðustu leiktíð.
Athugasemdir