Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
   þri 01. september 2015 21:51
Magnús Þór Jónsson
Mummi: Alltaf sagt að ef ég er í Pepsi spila ég með KR
Guðmundur Reynir er ánægður með tímabilið.
Guðmundur Reynir er ánægður með tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Guðmundur Reynir Gunnarsson bar fyrirliðabandið þegar Víkingur Ólafsvík tryggði sér sæti í Pepsi-deildinni með 7-2 sigri á Grindavík í kvöld.

„Þetta var geggjaður dagur, það var geggjað að vinna 7-2. Við lentum 1-0 undir og vorum bara lélegir til að byrja með, við komum eitthvað illa stemmdir í þetta, kannski var eitthvað hátt spennustig á okkur. En svo bara opnuðust einhverjar flóðgáttir, við vorum 4-1 yfir í hálfleik og svo 7-1 yfir, þetta var geggjað í dag," sagði Guðmundur við Fótbolta.net.

„Við erum bara orðnir óstöðvandi og ég vona bara að við höldum því áfram út seasonið. Við getum bætt stigamet þannig við höfum ennþá að einhverju að keppa."

Guðmundur segir að Víkingur sé klárlega besta liðið í 1. deildinni en veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. 

„Ég er eiginlega ekkert búinn að hugsa út í það, ég er samningsbundinn KR á næsta ári og ég hef alltaf sagt að ef ég verð í Pepsi þá spila ég með KR. Ég ætla ekkert að pæla í þessu, ég pæli í þessu seinna," segir Guðmundur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner