West Ham hefur fest kaup á króatíska sóknarmanninum Nikica Jelavic en hann kemur til Lundúnarliðsins frá Hull.
Jelavic skoraði 8 mörk í 27 leikjum fyrir Hull á síðustu leiktíð þegar liðið féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur einnig leikið með Everton í úrvalsdeildinni.
Jelavic þekkir vel til Slaven Bilic, stjóra West Ham, en þeir unnu saman á sínum tíma þegar Bilic var landsliðsþjálfari Króatíu.
Þessi þrítugi leikmaður gerir tveggja ára samning við West Ham. Kaupverðið er talið vera í kringum þrjár milljónir punda.
Það hefur verið mikið að gera á skrifstofu West Ham í dag en félagið gekk fyrr í dag frá samningum við Alex Song og Victor Moses.
Athugasemdir