Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   þri 01. september 2015 12:48
Magnús Már Einarsson
Rooney vissi ekki hver Martial var
Anthony Martial.
Anthony Martial.
Mynd: Getty Images
Manchester United mun kaupa framherjann unga Anthony Martial frá Monaco síðar í dag.

Margir voru hissa þegar fréttir bárust af félagaskiptunum í gær enda vissu ekki allir hver Martial er. Þar á meðal var Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United.

„Í gær (á sunnudag) spurði Wayne Rooney mig hver Martial væri því að enskir fjölmiðlar voru byrjaðir að tala um þetta," sagði Morgan Schneiderlin miðjumaður Manchester United í gær.

„Ég sagði honum að hann væri frábær leikmaður með mikla hæfileika og að hann hefði átt góða leiki með Monaco á síðasta tímabili og í byrjun tímabils núna."

„Ég sagði honum að hann væri teknískur og kröftugur. Svolítið eins og Thierry Henry eins og fjölmiðlar hafa talað um."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner