Southampton hefur samið við hollenska varnarmanninn Virgil van Dijk og kemur hann til félagsins frá Skotlandsmeisturum Celtic.
Van Dijk skrifaði undir fimm ára samning hjá Southampton og er kaupverið 11,5 milljónir punda.
Van Dijk skrifaði undir fimm ára samning hjá Southampton og er kaupverið 11,5 milljónir punda.
Celtic hefur þegar fundið arftaka van Dijk, en það mun vera Jozo Simunovic sem kemur frá Dinamo Zagreb á 4 milljónir.
Van Dijk er 24 ára gamall og hefur hann verið fastamaður í liði Celtic síðan hann kom til félagsins frá Groningen árið 2013.
Athugasemdir