Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 01. október 2014 07:30
Alexander Freyr Tamimi
Allegri lofsyngur Simeone fyrir leikinn gegn Atletico
Allegri ber mikla virðingu fyrir Simeone.
Allegri ber mikla virðingu fyrir Simeone.
Mynd: Getty Images
Massimiliano Allegri, þjálfari Juventus, segir að Atletico Madrid hafi smitast af frábæru hugarfari þjálfarans Diego Simeone.

Juventus heimsækir Spánarmeistarana í Meistaradeildinni í kvöld og hefur Allegri mikið álit á kollega sínum í Madrídarborg.

,,Við verðum að spila frábærlega og reyna að koma til baka til Tórínó með góð úrslit í farteskinu," sagði Allegri.

,,Þetta verður erfiður leikur, því Atletico er gríðarlega ákaft lið. Hugarfar og karakter Simeone, og hans gríðarlegi andlegi styrkur, smitast í liðið."

,,Þeir eru samstilltir og pressa í 90 mínútur. Það má ekki gleyma því að Simeone gerði liðið að Spánarmeisturum og var mínútu frá því að vinna Meistaradeildina."


Athugasemdir
banner
banner