Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 01. október 2014 21:00
Daníel Freyr Jónsson
Gerrard: Getum ekki verið að verjast svona
Steven Gerrard.
Steven Gerrard.
Mynd: Getty Images
,,Við vorum slakir allstaðar á vellinum og ég tel að þeir hafi verið ákveðnari inn á vellinum, sem er erfitt að segja, en það er sannleikurinn," sagði Steven Gerrad, fyrirliði Liverpool, eftir 2-1 tap gegn Basel í kvöld.

Liverpool hefur eftir leikinn 3 stig í 2. sæti B-riðils, en framundan eru tveir gríðarlega erfiðir leikir gegn Real Madrid sem er á toppi riðilsins með sex stig.

Mark Basel skoraði Marko Streller eftir hornspyrnu.

,,Við getum ekki haldið áfram að verjast svona úr föstum leikatriðum, við gerðum þeim auðvelt fyrir."

,,Við komum hingað og ætluðum að vinna og bjuggumst við sigri svo þetta er svekkjandi. Þetta er ekki nægilega gott."
Athugasemdir
banner
banner
banner