mið 01. október 2014 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Lopetegui eftir magnaða endurkomu: Skandall að við unnum ekki
Jackson Martinez bjargaði stigi fyrir Porto.
Jackson Martinez bjargaði stigi fyrir Porto.
Mynd: Getty Images
Julen Lopetegui, þjálfari Porto, segir að það sé skandall að lið sitt hafi ekki unnið leikinn gegn Shakhtar Donetsk í Meistaradeild Evrópu í gær.

Þetta segir hann þrátt fyrir að Jackson Martinez hafi bjargað 2-2 jafntefli með því að skora tvö mörk fyrir Porto á lokasekúndum leiksins.

,,Ég er í skýjunum með að liðið mitt hafi átt svona góðan leik gegn liði sem verður okkar helsti keppinautur um að komast upp úr riðlinum," sagði Lopetegui við blaðamenn.

,,Það hefði verið alger skandall ef við hefðum tapað, alveg eins og það er alger skandall að við höfum ekki fengið öll þrjú stigin."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner