Cheick Tiote, 28 ára miðjumaður Newcastle, telur að nú sé rétti tíminn til að yfirgefa félagið. Í viðtali við Koaci.com viðurkennir Tiote að hafa mikinn áhuga á að ganga í raðir Arsenal.
„Ég vil fara annað. Ég er búinn að vera fjögur ár með Newcastle og er kominn á þann stað að tími er til að leita eftir nýrri áskorun," segir Fílabeinsstrendingurinn.
„Ég vil fara annað. Ég er búinn að vera fjögur ár með Newcastle og er kominn á þann stað að tími er til að leita eftir nýrri áskorun," segir Fílabeinsstrendingurinn.
„Ég mun einbeita mér að komandi leikjum og sjá til hvað gerist á síðustu vikum ársins. Það er satt að Arsenal og félag í Rússlandi hafa sýnt mér áhuga. Ég vil helst vera áfram í enska boltanum."
Newcastle er í fallsæti eftir sex umferðir í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir