Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 01. október 2014 21:27
Daníel Freyr Jónsson
Wenger: Welbeck kláraði færi sín vel
Arsene Wenger.
Arsene Wenger.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með frammistöðu Danny Welbeck eftir að sá síðarnefndi gerði þrennu í 4-1 sigri á Galatasaray í kvöld.

Welbeck hefur oft á tíðum verið gagnrýndur fyrir að nýta færi sín ekki vel, en hann sýndi hvers hann er megnugur í kvöld og skoraði sína fyrstu þrennu á ferlinum.

,,Þetta markanef alvöru markaskorara var ákveðnara hjá Welbeck í kvöld og hann kláraði vel þau færi sem liðið náði að skapa," sagði Wenger.

,,Hann býr yfir miklum hraða sem gefur honum tíma til að vera rólegur þegar hann afgreiðir færin."

,,Við sýndum góðan hraða allstaðar á vellinum. Það sást hinsvegar hversu auðvelt er að missa stjórn á leiknum þegar maður missir mann af velli en frammistaðan var góð."
Athugasemdir
banner
banner