Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 01. október 2016 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mitrovic missti sig í gleðinni - „Hann var að reyna að meiða mig"
Það trylltist allt á St. James' Park á miðvikudagskvöldið
Það trylltist allt á St. James' Park á miðvikudagskvöldið
Mynd: Getty Images
Það ætlaði allt um koll að keyra á St. James' Park í Newcastle á miðvikudagskvöldið er Newcastle hafði betur gegn Norwich í ótrúlegum leik, þar sem lokatölurnar urðu 4-3 fyrir heimamenn. Sigurmarkið gerði Dwight Gayle á 96. mínútu, en með því marki fullkomnaði hann þrennu sína í leiknum.

Leikmenn og stuðningsmenn Newcastle voru skiljanlega mjög ánægðir eftir að Gayle skoraði sigurmarkið svona seint í leiknum, en hinn serbneski Aleksandar Mitrovic missti sig aðeins í gleðinni ef svo má segja.

Mitrovic, sem er þekktur fyrir að vera dálítið heitur í skapi, missti sig aðeins þegar hann var að fagna markinu, hann tók um háls Gayle og reif hann niður. Það náðist myndband af þessu, en það má sjá hér neðst í fréttinni.

„Hann hristi hausinn á mér. Hann kæfði mig og hann skallaði mig. Þetta var eins og að fá hálshnykk - ég held að hann hafi verið að reyna að meiða mig!" sagði Gayle léttur.

„En hann var bara eins spenntur og við vorum allir. Þetta var alveg ótrúlegt þarna í endann."

Hér að neðan má sjá myndband af þessu



Athugasemdir
banner
banner