„Það var gott að fá að spila reglulega loksins og vera mikilvægur hluti af liði. Þjálfararnir gáfu mér sjalfstraust sem skiptir máli," sagði Ernir Bjarnason við Fótbolta.net í gærkvöldi.
Ernir var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar karla á lokahófi sem Fótbolti.net hélt á Petersen svítunni. Þjálfarar og fyrirliðar liðanna í deildinni völdu.
Ernir er samningsbundinn uppeldisfélagi sínu, Breiðablik en spilaði á láni með Vestra í 2. deildinni þar sem hann náði þessum góða árangri.
„Ég prófaði í fyrra að fara á láni í Fram og það var annað hvort að prófa eitthvað svipað aftur eða eitthvað alveg nýtt. Mér fannst kominn tími á að prófa eitthvað alveg nýtt og það virkaði."
Ernir flutti til Ísafjarðar til að spila með liðinu í sumar.
„Það var frábært. Ég fékk íbúð og vinnu og það var hugsað frábærlega um mig. Fólkið fyrir vestan er til fyrirmyndar."
Nánar er rætt við Erni í sjónvarpinu hér að ofan þar sem hann segist ætla að berjast fyrir sæti í Breiðabliki í vetur.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir