Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 01. október 2016 16:57
Elvar Magnússon
Óli Jó: Kristinn Freyr og Sigurður Egill pottþétt áfram í Val
Óli Jó ásamt Antoni Ara sem varði víti fyrir Val í kvöld.
Óli Jó ásamt Antoni Ara sem varði víti fyrir Val í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég var ánægður með að vinna leikinn en ég held að þetta hafi verið mjög sanngjarnt," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals eftir 1-0 sigur á ÍA í lokaumferð Pepsi-deildar karla í dag.

Lestu um leikinn: Valur 1 -  0 ÍA

Valur endaði mótið í 5. sæti deildarinnar með 35 stig og varð einnig bikarmeistari annað árið í röð.

„Ég er þokkalega sáttur með sumarið. Við byrjuðum mótið illa og vorum langt á eftir efstu liðunum og ég held að menn hafi ekki haft trú á að geta náð þeim. Svo unnum við bikarinn og þá var í sjálfu sér búið að tryggja þetta Evrópusæti, það var langt í efsta sætið þá. Heilt yfir var þetta í lagi."

En það var mikill munur á Val eftir bikarsigurinn núna en í fyrra?

„Nei, nei. Það var ekkert mikill munur. Það eruð bara þið sem haldið það. En það var einhver munur og ég var ánægður með það."

Sigurður Egill Lárusson og Kristinn Freyr Sigurðsson áttu gott sumar með Val en eru að renna út á samningi. Býst Ólafur við að halda þeim?

„Þeir verða pottþétt áfram," sagði Óli. „Ég vona að Kristins vegna að hann fari til útlanda, það væri frábært fyrir hann og frábært fyrir Val líka og það starf sem er unnið hérna. Ég vona það en ef hann gerir það ekki þá verður hann áfram í Val."
Athugasemdir
banner
banner
banner