Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. október 2017 18:25
Magnús Már Einarsson
Torfi Tímoteus til reynslu hjá Wolves
Mynd: Fótbolti.net - Benóný Þórhallsson
Torfi Tímoteus Gunnarson, varnarmaður úr Fjölni, hélt í morgun til Englands þar sem hann verður á reynslu hjá Wolves næstu dagana.

Torfi er 18 ára gamall en hann var valinn efnilegasti leikmaðurinn hjá Fjöln á lokahófi félagsins í gær.

Samtals spilaði Torfi ellefu leiki í Pepsi-deildinni með Fjölni í sumar.

Í síðasta mánuði spilaði Torfi með U19 ára landsliðinu í tveimur sigrum á Wales í vináttuleikjum.

Torfi á einnig fimmtán leiki að baki með U17 ára landsliði Íslands.



Athugasemdir
banner
banner
banner